Nýlegar færslur

Samstarfsaðilar

nautilus_logo

Bílaþvottur og bón….Allir á hreinan bíl ….og styrkja meistaraflokk Þróttar í leiðinni !

Bílaþvottur og bón….Allir á hreinan bíl ….og styrkja meistaraflokk Þróttar í leiðinni !

 

Meistaraflokkur Þróttar í knattspyrnu verður með fjáröflun næstu helgi og ætla strákarnir að taka að sér að þrífa bíla Vogabúa innan sem utan, og að sjálfsögðu að bóna líka J

 

Sækjum bílana og skutlum þeim heim aftur.

 

  • Verðskrá: Mjög hagstætt og ódýrt!
  • Fólksbílar: Alþrif að innan og utan, það er þvottur, tjöruhreinsun, bón, rúður pússaðar og þrif að innan. Verð 6.000.
  • Jepplingar: Alþrif að innan og utan, þvottur, tjöruhreinsun, bón, rúður pússaðar og þrif að innan. Verð 8.000.
  • Jeppar: Alþrif að innan og utan, þvottur, tjöruhreinsun, bón, rúður pússaðar og þrif að innan. Verð 10.000.

 

Styrkjum strákana og förum á glansandi fínum og hreinum bíl út í fótboltasumarið.

 

Björgunarsveitarhúsið laugardaginn 12. maí 2012

 

Pantanir hjá:

Matta Ægis 865-3722

Þóri Hauks 777-6508

Hannesi Smára 663-1108

 

 

 

 

 

 

Stjórn Þróttar

Búið er að fullmanna nýja stjórn Þróttar eftir að okkur barst liðsauki frá þeim Júlíu Rós Atladóttir og Rebekku Riviere Magnúsdóttir. Er þetta frábær liðsauki enda mikið og skemmtilegt starf framundan hjá Þrótti á 80 ára afmæli félagsins.

Nýja stjórn Þróttar skipa því Kristján Árnason formaður Þróttar, Kristinn Þór Sigurðsson, Róbert Andri Unnarsson, Júlía Rós Atladóttir og Rebekke Riviere Magnúsdóttir. Varamenn í stjórn eru þær þaul reyndu stöllur Heiða Björk Elísdóttir og Sandra Helgadóttir.

Enn vantar þó að manna Foreldrafélag Knattspyrnunnar og Foreldrafélags Sundsins.

Oft var þörf en nú er nauðsyn þar sem að foreldrafélögin styðja við bakið á krökkunum, stunda fjáraflanir til að standa straum af keppniskostnaði og þar af leiðandi sparar foreldrum það að þurfa að leggja út fyrir því sjálfir. Þetta er nauðsynlegt starf innan Þróttar enda vinna margar hendur létt verk !

Þeir foreldrar sem að hafa áhuga á því að styðja félagið endilega hafið samband við framkvæmdastjóra í síma: 866-1699 eða á netfanginu: throttur@throttur.net

Það er þróttur í Þróttar stelpunum :)

5. flokkur kvk Þrótti vann FH, 1-0 í Faxaflóamótinu síðastliðin laugardag.

Það verður að segjast að það hafi verið þróttur í stelpunum þar sem að þær lentu í þeirri óheppni að vera ekki með neinn varamann og þurftu því að spila allan leikinn án hvíldar. Þrátt fyrir þetta náði Eydís Ósk Símonardóttir að skora flott mark og tryggði Þrótti sigur í leiknum. Þetta var hörku leikur hjá báðum liðum :)

Óskum við stelpunum innilega til hamingju með sigurinn :)

Frétt frá UMFÍ um aðalfund UMFÞ þann 21.mars

Nýr formaður kosinn á aðalfundi Umf. Þróttar

ungmennafelagid_throttur (http://umfi NULL.is/umfi09/upload/images/frettir/ungmennafelagid_throttur NULL.jpg)Aðalfundur Ungmennafélagsins Þróttar í  Vogum var haldinn í Lionshúsinu í Vogum í gærkvöldi. Á fundinum var lögð fram skýrsla og reikningar. Nýr formaður var kjörinn Kristján Árnason en hann var varaformaður í fyrri stjórn. Miklar breytingar urðu á aðalstjórn félagsins. Helga Guðrún Guðjónsdóttir formaður UMFÍ var gestur á fundinum.

Fundurinn var ágætlega sóttur og voru umræður góðar. Mikil eftirvænting er með að taka nýjan knattspyrnuvöll í notkun í sumarbyrjun og verður vígsluleikurinn þann 25. maí n.k. þegar Þróttur mætir Víði í Garði. Mikið og gott barna og unglingastarf er hjá félaginu þar sem markmiðið er að hafa það gaman saman ásamt því að stunda heilbrigt líferni.
Á fundinum voru fulltrúar úr knattspyrnudeild og júdódeild félagsins ásamt fulltrúa meistaraflokks Þróttar í knattspyrnu með framsögu um starf sinna deilda. Var mjög áhugavert að hlusta á þá.
Mikil ánægja kom fram hjá fundarmönnum með þá ákvörðun stjórnar Þróttar á síðasta ári að lækka æfingagjöld og bjóða börnum og unglingum að stunda fleiri en eina íþróttagrein en borga aðeins eitt æfingagjald. Félagið hélt íþróttadag í október þar sem kynntar voru þær íþróttagreinar sem eru hjá félaginu. Tvær vikur á ári getur unga fólkið mætt á æfingar í hvaða íþróttagrein sem er sér að kostnaðarlausu.
Ný heimasíða hefur verið tekin í notkun og inn á henni má m.a. finna siðareglur, agareglur og eineltisáætlun félagsins. Ungmennafélagið Þróttur er 80 ára á árinu og er ætlunin að halda upp á þau tímamót með margvíslegum hætti.

 

Aðalfundur Ungmennafélagsins Þróttar

Aðalfundur Ungmennafélagsins Þróttar verður haldin í
Lionshúsinu þriðjudaginn 20. mars kl. 20:00.

Dagskrá;

1. Kosning stjórnar og varamanna í stjórn, ásamt
skoðunarmönnum reikninga.

2. Önnur mál.

 

Óskum eftir fólki í stjórn. Áhugasamir hafi samband
við framkvæmdastjóra í síma: 866-1699.

 

Allir bæjarbúar sem hafa áhuga á barna og
unglingastarfi  velkomnir.

 

Stjórn Þróttar

Flottur árangur

Stjórn Þróttar vill óska Badda þjálfara til hamingju með að hafa staðist UEFA-b þjálfara gráðuna sína með glans.

Það er stolt okkar að þjálfarar Þróttar séu vel menntaðir á sínu sviði :)

Íþróttaskóli

Því miður verður íþróttaskólinn á laugardögum felldur niður það sem eftir er tímabilsins.

Æfing fellur niður hjá 7 flokki kk

Æfing fellur niður hjá 7 flokki kk í dag þriðjudaginn 31. janúar, vegna veikinda.

Badminton fellur niður í dag vegna veikinda.

Badminton æfingin í dag þriðjudaginn 31.janúar fellur niður vegna veikinda.

Æfing fellur niður hjá 7 flokk kk

Æfing 7 flokks drengja sem að átti að vera milli 16 og 17 í dag, fellur niður vegna veikinda þjálfara.

 

Atburðadagatal

maí 2012
Þ Mi Fi L S
 123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031EC

Héðan og þaðan

facebooklink1x170

Samstarfsaðilar

Landsbankinn
HS orka